421 8070

UnglingaÞrek 6. & 7. bekk

UnglingaÞrek fyrir 6. & 7. bekk.

  • Næsta námskeið hefst 9. janúar
  • Námskeiðið er í 18 vikur
  • Þjálfun fer fram mán, þri og fim kl. 16:30
  • Þjálfari er Ágústa Guðný Árnadóttir

Skráning er HÉR

ATH: Hámarksfjöldi er á námskeiði

Markmið okkar með þessum tímum er að bjóða upp á skemmtilega líkamsrækt, kennslu á grunnatriðum í styrktarþjálfun, rétta líkamsbeitingu og uppbyggingu til framtíðar á sjálfstrausti og getu til að iðka frekari líkamsrækt.

Æfingakerfið er gert skemmtilegt þannig að allir finni sig í hverri æfingu. Kennsla á réttri líkamsbeitingu er mjög mikilvæg. Með auknum styrk á réttum vöðvum hjálpum við fólki að tileinka sér betri líkamsbeitingu og vita mikilvægi réttrar líkamsbeitingar.

Með því að kenna krökkum að umgangast líkamsrækt og kenna þeim undirstöður styrktar æfinga aukum við sjálfstraust krakkanna til framtíðar í leik og starfi. Mikil áhersla er lögð á æfingar þar sem notast er einungis við eigin líkamsþyngd. Einnig eru notaðar teygjur, létt lóð og ketilbjöllur.

Reykjanesbær greiðir árlega hverju barni sem á lögheimili í bæjarfélaginu og er á aldrinum 6-18 ára kr. 45.000 til niðurgreiðslu á viðurkenndu íþrótta,- tómstunda og listgreinastarfi.

Vinsælt

Barnagæslan Krílabær

Námskeið