421 8070

SportHIIT

Komdu og prófaðu SportHIIT.

Þín markmið er okkar vegferð!

áskorun 2023 (4)

Það eru yfir 25 tímar í boði í hverri viku, það ættu allir að geta fundið tíma sem hentar.

Hvað er SportHIIT

SportHIIT er einstaklingsmiðuð þjálfun sem hentar öllum, þar sem hver og einn fær að vera á sínum forsendum. Tímarnir eru hóptímar sem fara fram í lokuðum sal. Í SportHIIT æfir fólk sem:

  • er að taka sín fyrstu skref í líkamsrækt
  • er búið að vera lengi í líkamsrækt eða íþróttum
  • er með þyngdarvandamál
  • vill bæta á sig massa
  • vill bæta þol sitt

SportHIIT er fyrir alla, hvort sem fólk er í sínu besta formi eða ekki.

Allir geta æft saman þar sem æfingarnar eru fjölbreyttar og ef eitthvað hentar ekki vel þá finna þjálfarar lausn á því með þér.

Í SportHIIT er notast við High Intensity Interval Training (HIIT)

Æfingakerfið er byggt upp á lotuþjálfun, ýmist er unnið í ákveðinn tíma eða framkvæmdar ákveðnar endurtekningar af æfingum á tíma. Æfingarloturnar og endurtekningarnar eru mismunandi, allt eftir því hvert markmið æfingarinnar er. Markmið æfingarinnar getur verið að auka styrk, þol og/eða brennslu.

Áherslur SportHIIT

Í SportHIIT er lögð áhersla á gæði hreyfinga. Mikilvægt er að fólk æfi á sínum hraða og á sínum forsendum, auk þess er lögð áhersla á að hafa æfingaprógrammið fjölbreytt og skemmtilegt þannig að fólk geti komið og haft gaman af því að mæta í líkamsrækt!

Búnaður sem notast er við í SportHIIT er til dæmis:

  • Ketilbjöllur
  • Eigin þyngd
  • Kaðlar
  • Sandpokar
  • Boltar
  • Assault tæki
  • Teygjur

Smelltu HÉR til þess að ganga frá samning

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á birgitta@sporthusid.is eða í s: 421-8070

Vinsælt

Barnagæslan Krílabær

Námskeið