421 8070

Unglingaþjálfun

photo_2022-03-09_14-01-24

Crossfit unglinga (8 - 10 bekk)

18 vikna námskeið hefst 9. janúar

A.T.H. hægt er að rótera á milli tímaá námskeiðunum í samráði við þjálfara

Námskeið 1

  • mán kl. 15:40, þri kl. 15:40 og fim kl. 15:40

Námskeið 2

  • mán kl. 16:30, þri kl. 16:30 og fim kl. 16:30

Nánari upplýsingar finnur þú hér --> Crossfit unglinga (8-10bekk)


Unglingaþrek (6 & 7 bekkur)

18 vikna námskeið hefst 9. janúar

  • Þjálfun fer fram mán, þri og fim kl. 16:30

Nánari upplýsingar finnur þú hér --> Unglingaþrek (6-7 bekk)


Reykjanesbær greiðir árlega hverju barni sem á lögheimili í bæjarfélaginu og er á aldrinum 6-18 ára kr. 45.000 til niðurgreiðslu á viðurkenndu íþrótta,- tómstunda og listgreinastarfi. Sendið tölvupóst á fanney@sporthusid.is og við sendum upplýsingar á Reykjanesbæ.

Markmið okkar með þessum tímum er að bjóða upp á skemmtilega líkamsrækt, kennslu á grunnatriðum í styrktarþjálfun, rétta líkamsbeitingu og uppbyggingu til framtíðar á sjálfstrausti og getu til að iðka frekari líkamsrækt. Við munum bjóða uppá:

  • Crossfit
  • Þrek & þol

Æfingakerfið er gert skemmtilegt þannig að allir finni sig í hverri æfingu. Kennsla á réttri líkamsbeitingu er mjög mikilvæg. Með auknum styrk á réttum vöðvum hjálpum við fólki að tileinka sér betri líkamsbeitingu og vita mikilvægi réttrar líkamsbeitingar. Með því að kenna krökkum að umgangast líkamsrækt og kenna þeim undirstöður styrktar æfinga aukum við sjálfstraust krakkanna til framtíðar í leik og starfi. Mikil áhersla er lögð á æfingar þar sem notast er einungis við eigin líkamsþyngd. Einnig eru notaðar teygjur og ketilbjöllur ef við á.

Strætó stoppar fyrir utan Keili sem er við hliðina á Sporthúsinu.

Greiðsluupplýsingar

Til þess að gera samning þarf að ganga frá skráningu í afgreiðslu Sporthússins

Einnig er hægt er að greiða með Netgíró

Vinsælt

Barnagæslan Krílabær

Námskeið