421 8070

UnglingaÞrek | 9. jan

Upplýsingar Kennarar Salir Panta námskeið
Verð 47.900,- kr.
18 vikna námskeið hefst 9. janúar

Salir

Salur 1

Kennarar

Ágústa Guðný Árna

Hóptímakennari

UnglingaÞrek fyrir 6. & 7. bekk.

18 vikna námskeið hefst 9. janúar

  • Námskeiðið er kennt 3 x í viku kl. 16:30
  • Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga.

- ATHUGIÐ- Ef námskeiðið er greitt með frístundastyrk þá er skráning HÉR

Á þessu námskeiði er boðið uppá skemmtilega líkamsrækt, kennslu á grunnatriðum í styrktarþjálfun, rétta líkamsbeitingu og uppbyggingu til framtíðar á sjálfstrausti og getu til að iðka frekari líkamsrækt.

Æfingakerfið er gert skemmtilegt þannig að allir finni sig í hverri æfingu. Kennsla á réttri líkamsbeitingu er mjög mikilvæg. Með auknum styrk á réttum vöðvum hjálpum við fólki að tileinka sér betri líkamsbeitingu og vita mikilvægi réttrar líkamsbeitingar.

Með því að kenna krökkum að umgangast líkamsrækt og kenna þeim undirstöður styrktar æfinga aukum við sjálfstraust þeirra til framtíðar í leik og starfi. Mikil áhersla er lögð á æfingar þar sem notast er einungis við eigin líkamsþyngd. Einnig eru notaðar teygjur, létt lóð og ketilbjöllur.


Verð 47.900,- kr.
18 vikna námskeið hefst 9. janúar