421 8070

Opnunartími Sporthússins helst óbreyttur

Næstkomandi 4 vikur hafa eftirfarandi ráðstafanir verið gerðar:

Opnunartími Sporthússins helst óbreyttur

Opnunartími barnagæslu helst óbreyttur

Hámarksfjölda verður stýrt af sömu reglum og í öðrum rýmum.

  • Fjöldatakmörkun verður í alla sali og rými miðað við 2 m svigrúm á milli manna.

  • Tilkynningar hafa verið settar upp við öll rými þar sem tilgreindur er hámarksfjöldi í tilteknu rými.

  • Hóptímar ættu allir að haldast óbreyttir en fjöldatakmörkun í þá er eftir tilsettum reglum. Ef breyting verður á af einhverjum sökum verður það tilkynnt.

  • Í tækjasal viljum við biðja viðskiptavini að auka rými á milli sín og við munum taka annað hvert upphitunartæki úr umferð til að tryggja það.

  • SPA aðstaða verður lokað

  • Komið hefur verið upp verklagi þar sem allir almennir snertilfetir eru þrifnir reglulega yfir daginn með sótthreinsiefni. Viljum við biðja ykkur um að hreinsa allan búnað eftir ykkur sem og upphitunartæki.

Ef þú hefur umgengist einstakling sem er smitaður af Covid-19, ert með einkenni smits eða hefur grun um að vera jafnvel orðinn smitaður þá óskum við eftir því að þú sýnir öðrum þá virðingu að mæta ekki á æfingu fyrr en öruggt er að þú ert ekki smitaður.

Loks minnum við á mikilvægi handþvottar og mikilvægi þess að fara eftir tilmælum landlæknis og sóttvarnalæknis.

Með vinsemd og virðingu,

Sporthúsið

Vinsælt

Barnagæslan Krílabær

Námskeið