421 8070

Stök mæling í Technogym Checkup

Upplýsingar
Verð 14.990,- kr.

Fullkomið fyrir þá sem vilja snögga yfirsýn yfir líkamlegt ástand sitt.

Inniheldur:

  • Eina mælingu í Technogym Checkup

  • Yfirlit yfir niðurstöður

  • Stutta útskýringu á niðurstöðum

  • Aðgang að appi og skýrslum

Næstu skref:

1. Mikilvægt er að hlaða niður Technogym appinu og stofna notandaaðgang þar áður en mætt er í mælinguna. Smelltu hér til að hlaða niður appinu

2. Stofnaðu notandaaðgang og skráðu þig inn

3. Veldu tíma í dagatalinu fyrir Checkup mælinguna þína

4. Skoðaðu niðurstöður úr Checkup mælingunni í appinu

Hvernig fer mælingin fram?

Þjálfari tekur á móti þér og leiðir þig í gegnum allt ferlið. Technogym Checkup tækið notar háþróaða mælitækni og gervigreind til þess að meta líkamlegt og hugrænt ástand. Gott er að mæta í aðsniðnum fötum svo að myndavélin í tækinu geti greint hreyfingar á sem nákvæmastan hátt.

Tækið mælir:

  • Liðleika

  • Jafnvægi

  • Líkamssamsetningu

  • Hugræna færni

  • Styrk

  • Þol

Þolprófið samanstendur af hnébeygjuæfingum þar sem hjartsláttur er mældur fyrir, á meðan og eftir að æfingarútínunni er lokið. Einnig er hægt að taka þolprófið á þoltækjum sé þess óskað. Gott er því að mæta í æfingafatnaði og æfingaskóm með vatnsbrúsa meðferðis.

Við hlökkum til að sjá þig og hjálpa þér að kortleggja hvar þú stendur, svo við getum leitt þig áfram í átt að þínum markmiðum.


Verð 14.990,- kr.

Vinsælt

Námskeið