Pump & Core
Upplýsingar Kennarar SalirPumpCore er hóptími fyrir alla. Byrjendur sem og lengra komna. Unnið er með lóð og stangir til þess að styrkja og tóna hvern einasta vöðva líkamans.
Í þessum tímum nýtum við alla kosti til þess að þjálfa líkamann með lóðum í skemmtilegu andrúmslofti fullu af orku og hvatningu. Engin hopp eða högg á líkama eða liðamót. Léttar stangir með lóðum þar sem auðvelt er að breyta þyngdum.
Unnið er með alla stóru vöðvahópana. Í lok tímans endum við á grunnvöðvum, svo sem kvið- og djúpbakvöðvum sem styrkja okkur í allri hreyfingu í daglegu lífi.