CrossFit unglinga | Janúar
Upplýsingar Panta námskeiðSkráningin er einungis á Sportabler - Ekki velja "Panta námskeið" hnappinn.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ Á NÁMSKEIÐIÐ
CrossFit unglinga fyrir 8. - 10. bekk
8 vikna námskeið hefst 6. Janúar Námskeiðið er kennt:
- Þriðjudaga og Fimmtudaga kl. 16:30
Í CrossFit unglingaþjálfun leggjum við ríka áherslu á að kenna rétta líkamsbeitingu, styrkja kjarnavöðva og viðhalda eðlilegum liðleika í gegnum hraðvaxtarskeið, til þess að unglingurinn hafi alla burði til þess að leggja stund á hefðbundnar styrktaræfingar þegar hann hefur þroska til.
Námskeiðið janfgildir grunnnámskeiði. Þeir sem eru að útskrifast úr 10. bekk geta farið beint í CrossFit.
Við ætlum okkur að skapa jákvætt, uppbyggilegt, skemmtilegt en jafnframt kröfuhart umhverfi þar sem unglingarnir munu læra um og ástunda heilbrigða lifnaðarhætti.
Þau fá að reyna það á sjálfum sér hvernig ástundun, vinna og agi skilar árangri á ýmsum sviðum líkamlegs og andlegs atgervis.