421 8070

Þitt Form

þitt form content litið

Vilt þú komast í Þitt besta Form?

Hvað er Þitt Form:

Þitt Form er æfingakerfi fyrir þá sem eru tilbúnir að taka vel á því og uppskera árangur samkvæmt því. Þol, styrkur, kraftur, fjör, sviti, léttar teygjuæfingar og skemmtilegur félagsskapur.

Þú verður kominn í Þitt besta Form áður en þú veist af!

Þitt Form með Freyju Sig. byggist á einföldum æfingum sem miðast við að þátttakendur nái að hámarka brennslu og þjálfa upp þol og styrk á skömmum tíma. Mikil áhersla er lögð á að þjálfa allan líkamann. Gamla góða stöðvaþjálfunin í bland við skemmtilegar nýjungar og skorpuþjálfun.

Grunnbrennsla líkamans eykst og í hverjum tíma verður til hinn eftirsótti eftirbruni í líkamanum sem gerir það að verkum að hitaeiningabrennsla líkamans heldur áfram á auknum hraða í nokkra klukkustundir eftir að æfingu lýkur.
 Það er aldrei of seint að skora á sjálfa/n sig og komast í þitt besta form.

Þú mætir þegar þér hentar:

  • Mánudagar: 06:00 / 08:45 / 12:00 / 17:15
  • Þriðjudagar: 08:45 / 12:00 / 18:15
  • Miðvikudagar: 06:00 / 08:45 / 12:00 / 17:15
  • Fimmtudagar: 06:00 / 08:45 / 12:00 / 17:15 / 18:15
  • Föstudagar: 08:45 / 12:00
  • Laugadagar: 09:30

Smelltu HÉR til þess að ganga frá samning

INNIFALIÐ:

Ótakmarkaður aðgangur að opnum tímum og tækjasal. Fitumæling fyrir þá sem óska eftir, aðgangur að lokaðri facebook síðu. Þú færð matarprógram og fróðleik um heilbrigt gott mataræði sem þarf ekki að vera einhæft og leiðinlegt.

Endurnýjaðu efnaskiptahraðann og keyrðu upp brennsluna þína. Æfingakerfi sem miðar að því að "ögra" líkamanum að komast út úr stöðnun. Æfingar hámarka fitubrennslu, tryggja að þú styrkir líkamann, aukir þol og losnir við aukakíló.

Þolæfingar og styrktaræfingar með lóðum í fjölbreyttum og hressilegum tímum. Fjör og gaman, áður en þú veist af ertu komin í mun betra form og líður vel.

Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum í Sporthúsinu Reykjanesbæ.

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á fanney@sporthusid.is eða í s: 421-8070

Vinsælt

Barnagæslan Krílabær

Námskeið