Covid-19
Tilkynning vegna Covid
Takmarkanir á þjónustu vegna samkomubanns stjórnvalda.
Við gleðjumst yfir því að þurfa ekki að loka í Sporthúsinu meðan takmarkanir á samkomubanni standa yfir í fjórar vikur!
Okkur er heimilt að veita takmarkaða þjónustu en þurfum á ykkar liðsinni að halda við að leggja okkar af mörkum til almannavarna. Til að geta veitt þessa takmörkuðu þjónustu höfum við gert talsverðar ráðstafanir sem geta reynt á þolinmæði okkar allra, meðal þess er að gefa hverjum viðskiptavini rúmt svigrúm (amk 2 m á milli fólks) til að stunda æfingar. Á það við í öllum rýmum okkar.
Við munum reyna að hafa eftirlit með fjölda fólks í hverju rými og auglýstur verður hámarksfjöldi á hverju svæði fyrir sig. Við biðjum þig, kæri viðskiptavinur, að virða þennan hámarksfjölda og hjálpa okkur þannig að lágmarka smithættu.
Það er ósk okkar að hver og einn viðskiptavinu mæti á réttum tíma á æfingu og dvelji ekki í húsinu að óþörfu, þannig að ekki safnist saman hópar fólks fyrir utan æfingasali eða í búningsklefum. Ef þú hefur svigrúm til þess að fara í sturtu heima, þá er það vel þegið.
Þökkum samvinnuna! Sporthúsið