Crossfit unglinga - Framhald
Upplýsingar Kennarar Salir Panta námskeiðCrossfit unglinga.
6 vikna framhalds námskeið hefst 19. apríl
-Námskeiðið er kennt mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15:30
Í CrossFit unglingaþjálfun leggjum við ríka áherslu á að kenna rétta líkamsbeitingu, styrkja kjarnavöðva og viðhalda eðlilegum liðleika í gegnum hraðvaxtarskeið, til þess að unglingurinn hafi alla burði til þess að leggja stund á hefðbundnar styrktaræfingar þegar hann hefur þroska til.
Námskeiðið janfgildir grunnnámskeiði. Þeir sem eru að útskrifast úr 10. bekk geta farið beint í Crossfit.
Við ætlum okkur að skapa jákvætt, uppbyggilegt, skemmtilegt en jafnframt kröfuhart umhverfi þar sem unglingarnir munu læra um og ástunda heilbrigða lifnaðarhætti.
Þau fá að reyna það á sjálfum sér hvernig ástundun, vinna og agi skilar árangri á ýmsum sviðum líkamlegs og andlegs atgervis.