Yoga byrjendanámskeið
Upplýsingar Kennarar Salir Panta námskeiðNæsta námskeið hefst 24. febrúar
Viltu læra undirstöðuatriðin í yoga?
Byrjendanámskeiðið er fyrir alla sem vilja læra undirstöðuatriðin í yoga betur.
Á byrjendanámskeiðinu gefst þátttakendum betur færi á að fá ráðleggingar og leiðbeiningar hjá kennara en í opnum tímum.
Farið verður yfir helstu stöður, hreyfingar, tækni, öndunaræfingar og slökun.
Þátttakendur læra grunnstöður yoga vel og ættu að vera vel undirbúnir fyrir opna yogatíma eftir námskeiðið.
Einblínt verður á Hatha yoga en þátttakendur verða einnig kynntir fyrir Vinyasa flæði.
Þátttakendum ber að taka með sér handklæði til að setja á yogadýnuna á meðan á tíma stendur.
Mælt er með því að þátttakendur hugsi sérstaklega vel um vatnsdrykkju fyrir og eftir tíma þar sem tíminn fer fram í hituðum sal.
- Kennt mánudaga og fimmtudaga kl. 18:35 - 19:35
- Verð: 19.500kr,
- Verð fyrir meðlimi: 9.015kr
INNIFALIÐ:
Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum í Sporthúsinu Reykjanesbæ og Kópavogi.
Skráningarferlið:
Greiða verður við skráningu. Greiðslumátar eru eftirfarandi:
- Greiða í gegnum hér á heimasíðunni
- Koma niður í Sporthús Reykjanesbæ, skrá og greiða í afgreiðslunni
- Hringja inn símgreiðslu í síma 421-8070
- Greiða í heimabankanum inn á reikning Sporthússins Reykjanesbæ / Sportvellir: 0542-26-006407 kennitala: 640712-0820.
- Greiða í gegnum Netgíró. Viðskiptavinur þarf að skrá sig inn á http://netgiro.is/, vera tengdur inn á síðuna og hafa þá samband við starfsfólk Sporthússins. Starfsmaður leiðir þig svo í gegnum örfá og einföld skref. Tekur aðeins um 2 mínútur.
ATH! senda verður kvittun fyrir greiðslu á fanney@sporthusid.is þar sem kemur fram nafn þátttakanda + kennitala + fyrir hvaða námskeið greitt er. Kvittunin gildir sem greiðsla.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á fanney@sporthusid.is eða í s: 421-8070