421 8070

Þitt Form kl. 06:00

Upplýsingar Kennarar Salir Panta námskeið
Verð 27.980,- kr.
6 vikna námskeið hefst 31. október

Salir

Salur 8

Kennarar

Freyja Sigurðardóttir

Þitt Form þjálfari
8674869

Næsta námskeið hefst 31. október

Hvað er Þitt Form:

Þitt-Form er æfingakerfi fyrir þá sem eru tilbúnir að taka vel á því og uppskera árangur samkvæmt því. Þol, styrkur, kraftur, fjör, sviti, léttar teygjuæfingar og skemmtilegur félagsskapur.

Þú verður kominn í Þitt besta Form áður en þú veist af!

Þitt-Form með Freyju Sig. byggist á einföldum æfingum sem miðast við að þátttakendur nái að hámarka brennslu og þjálfa upp þol og styrk á skömmum tíma. Mikil áhersla er lögð á að þjálfa allan líkamann. Gamla góða stöðvaþjálfunin í bland við skemmtilegar nýjungar og skorpuþjálfun.

Grunnbrennsla líkamans eykst og í hverjum tíma verður til hinn eftirsótti eftirbruni í líkamanum sem gerir það að verkum að hitaeiningabrennsla líkamans heldur áfram á auknum hraða í nokkra klukkustundir eftir að æfingu lýkur.
 Það er aldrei of seint að skora á sjálfa/n sig og komast í þitt besta form.

Námskeiðið er kennt á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum

  • Aukatímar eru kenndir þriðjudaga og föstudaga kl. 9:00
  • Þitt Form EXTREME: Laugardaga 9:30

Ef þú vinnur vaktarvinnu og þarft að komast inn á öðrum tímum þá er ekkert mál að færa sig á milli námskeiða!

INNIFALIÐ:

  • Ótakmarkaður aðgangur að opnum tímum og tækjasal
  • Fitumæling fyrir og eftir
  • Aðgangur að lokaðri facebook síðu
  • matarprógram og fróðleik um heilbrigt gott mataræði sem þarf ekki að vera einhæft og leiðinlegt.

Endurnýjaðu efnaskiptahraðann og keyrðu upp brennsluna þína. Æfingakerfi sem miðar að því að "ögra" líkamanum að komast út úr stöðnun. Æfingar hámarka fitubrennslu, tryggja að þú styrkir líkamann, aukir þol og losnir við aukakíló.

Þolæfingar og styrktaræfingar með lóðum í fjölbreyttum og hressilegum tímum. Fjör og gaman, áður en þú veist af ertu komin í mun betra form og líður vel.

Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum í Sporthúsinu Reykjanesbæ og Kópavogi

Skráningarferlið:

Einungis er hægt að skrá gegn greiðslu

Þú getur tryggt þér pláss strax með því að bóka í gegnum heimasíðuna okkar:

1 - Velur þér námskeið neðst hér á síðunni.
2- Setur námskeið í körfu.
3 - Efst á síðunni kemur upp "Þitt Form - sett í körfu" og ýtir þar á KÖRFU.
4 - Þú gertur valið fjölda og breytt körfu ef við á.
5 - Ýttu á "Ganga frá pöntun" og síðan tekur þig áfram á greiðslusíðu þar sem þú fyllir inn upplýsingar. Greiðsla er ekki framkvæmd fyrr en þú ýtir á "Ganga frá greiðslu" neðst á síðunni.

Auk þess er hægt er að greiða með eftirfarandi leiðum:

  • Ganga frá greiðslu í afgreiðslu Sporthússins.
  • Hringja í 421-8070 og greiða með símgreiðslu eða Netgíró

Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á fanney@sporthusid.is eða í s: 421-8070


Verð 27.980,- kr.
6 vikna námskeið hefst 31. október