Golfnámskeið - Stutta spilið
Upplýsingar Kennarar Salir Panta námskeiðEf þú vilt lækka forgjöfina þá er þetta rétta námskeiðið fyrir þig!
Golfæfingar fyrir áhugasama golfara með áherslu á stutta spilið.
Notið hádegið á þriðjudögum og fimmtudögum í mars og apríl til að leggja grunn að forgjafarlækkun sumarsins.
- 6 vikna námskeið sem hefst 9. mars!
- Kennt 2x í viku - þriðjudaga og fimmtudaga kl. 12:05
- Verð: 21.915 kr. fyrir meðlimi Sporthússins en 32.400 kr. fyrir aðra.
- Kennari: Margeir Vilhjálmsson Golfþjálfari
- Takmarkað pláss
Stuttu höggin í kringum flatirnar eru þau mikilvægustu í golfinu til að bæta skorið. Sporthúsið býður nú uppá 6 vikna æfingar (12 skipti) í stutta spilinu undir stjórn Margeirs Vilhjálmssonar golfþjálfara. Æfingarnar fara fram í knattspyrnusal Sporthússins sem verður breytt í innigolfvöll meðan á æfingum stendur.
Æfingar og kennsla í stutta spilinu - Vipp og högg með fleygjárnum.
Þátttakendur þurfa að mæta með 1-3 golfkylfur í tíma.
Innifalið í námskeiði
- Tveir tímar með golfþjálfara í viku
- Aðgangur að opnum hóptímum Sporthússins meðan á námskeiði stendur
- Aðgangur að tækjasal meðan á námskeiði stendur
INNIFALIÐ í öllum námskeiðum:
Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum í Sporthúsinu Reykjanesbæ og Kópavogi
Skráningarferlið:
Einungis er hægt að skrá gegn greiðslu
Þú getur tryggt þér pláss strax með því að bóka í gegnum heimasíðuna okkar:
1 - Velur þér námskeið neðst hér á síðunni.
2- Setur námskeið í körfu.
3 - Efst á síðunni kemur upp "Golfnámskeið sett í körfu" og ýtir þar á KÖRFU.
4 - Þú gertur valið fjölda og breytt körfu ef við á.
5 - Ýttu á "Ganga frá pöntun" og síðan tekur þig áfram á greiðslusíðu þar sem þú fyllir inn upplýsingar.
Greiðsla er ekki framkvæmd fyrr en þú ýtir á "Ganga frá greiðslu" neðst á síðunni.
Auk þess er hægt er að greiða með eftirfarandi leiðum:
- Ganga frá greiðslu í afgreiðslu Sporthússins.
- Hringja í 421-8070 og greiða með símgreiðslu eða Netgíró
- Millifæra á 0542-26-6407 kt:640712-0820 ef það er millifært þarf að senda kvittun á fanney@sporthusid.is
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á fanney@sporthusid.is eða í s: 421-8070