Crossfit unglinga 19. jan Byrjenda -FULLT
Upplýsingar Kennarar Salir Panta námskeiðCrossfit unglinga fyrir 8. - 10. bekk.
þri kl. 15:40, fim kl. 15:40 og fös kl. 14:50
A.T.H. hægt er að rótera á milli daga á námskeiðinum í samráði við þjálfara og ef pláss leyfir
(hitt námskeiðið er kennt mán kl. 15:40, mið kl. 15:40 og fös kl. 15:40)
BYRJENDANÁMSKEIÐ + Framhaldsnámskeið
- Hefst 19. janúar 2021
- Námskeiðið er í 12 vikur
- Verð: 45.000kr
- Hámarksfjöldi er á námskeiði
Hægt er að dreifa greiðslum ef greitt er með Netgíró
Reykjanesbær greiðir hvatagreiðslur með þessu námskeiði
Í CrossFit unglingaþjálfun leggjum við ríka áherslu á að kenna rétta líkamsbeitingu, styrkja kjarnavöðva og viðhalda eðlilegum liðleika í gegnum hraðvaxtarskeið, til þess að unglingurinn hafi alla burði til þess að leggja stund á hefðbundnar styrktaræfingar þegar hann hefur þroska til.
Námskeiðið janfgildir grunnnámskeiði. Þeir sem eru að útskrifast úr 10. bekk geta farið beint í Crossfit.
Við ætlum okkur að skapa jákvætt, uppbyggilegt, skemmtilegt en jafnframt kröfuhart umhverfi þar sem unglingarnir munu læra um og ástunda heilbrigða lifnaðarhætti.
Þau fá að reyna það á sjálfum sér hvernig ástundun, vinna og agi skilar árangri á ýmsum sviðum líkamlegs og andlegs atgervis.
Þjálfari: Brynjar Þór Magnússon