Shape & Core
Upplýsingar Tímar Kennarar SalirTímar
Þriðjudaga
Shape & Core
Fyrir þá sem vilja móta/tóna líkamann og styrkja grunnvöðva (Core) Mikill sviti og skemmtilegar æfingar
Shape hlutinn: Hér förum við í stærri vöðvahópa (fætur, rass, hendur, axlir og bak). Markmiðið er að ná sem mestu út úr æfingunni á stuttum tíma með fjölbreyttum tímum. Við notumst t.d við lóð, stöng, eigin þyngd og teygjur.
Core hlutinn: Core vöðvar eru svokallaðir grunnvöðvar í kvið, bak og rass m.a.. Að viðhalda þessum vöðvum skiptir okkur máli til að halda líkamanum heilbrigðum og flottum. Hér má nefna: Koma í veg fyrir/minnka bakvandamál, styrkja magasvæðið og líkamsstöðu svo eitthvað sé nefnt.
Við gleymum oft að taka tillit til minni vöðva sem skipta gríðalega miklu máli fyrir styrk, mótun og heilbrigði.
Þessi tími hentar byrjendum sem lengra komnum. Hver fer á sínum hraða með sínar þyngdir og æfingar útskýrðar vel.
Tíminn leiðir til góðrar eftirbrennslu og svita.